Fotbolti.net
19.07.13 - 20:00
Magnús Már Einarsson

Watford kaupir sjö leikmenn frá Udinese (Staðfest)

Watford kaupir sjö leikmenn frá Udinese (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Watford hefur fengið sjö leikmenn frá systurfélagi sínu Udinese á Ítalíu.

Um er að ræða Diego Fabbrini, Gabriele Angella, Almen Abdi, Cristian Battocchio, Marco Cassetti, Davide Faraoni og Javier Acuna

Pozzo fjölskyldan á bæði Udinese og Watford og enska félagið er notað sem hálfgert varalið fyrir ítalska félagið.
Á síðasta tímabili voru tíu leikmenn frá Udinese á láni hjá Watford.

Liðið var í baráttu um sæti í ensku úrvalsdeildinni en tapaði gegn Crystal Palace í úrslitaleik umspilsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.