Dalvík/Reynir 2 - 1 KFG
1-0 Pálmi Heiðmann Birgisson ('38)
1-1 Frans Sigurðsson ('81)
2-1 Númi Kárason ('84)
1-0 Pálmi Heiðmann Birgisson ('38)
1-1 Frans Sigurðsson ('81)
2-1 Númi Kárason ('84)
Dalvík/Reynir lagði KFG að velli þegar liðin mættust í 2. deild karla á þessu föstudagskvöldi.
Leikið var í Boganum á Akureyri. Dalvík/Reynir leiddi 1-0 í hálfleik með marki sem skorað var á 38. mínútu.
Þegar tæpar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma jafnaði KFG, en þremur mínútum síðar komst Dalvík/Reynir aftur yfir og tryggði sér sigurinn. Lokatölur 2-1.
Eftir þennan sigur í kvöld, sem er annar sigur liðsins í röð, er Dalvík/Reynir í fjórða sæti deildarinnar með 18 stig. KFG er í tíunda sæti með 12 stig.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir