Fotbolti.net
19.07.20 - 23:20
Kristófer Jónsson

Haukur Páll: Þurfum að stíga upp á Hlíðarenda

Auglýsing
Haukur Páll var ánægður með liðið sitt í dag.

Haukur Páll var ánægður með liðið sitt í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur gegn Breiðablik í Pepsi Max-deild karla í kvöld.

<i>„Þetta voru gríðarlega sæt þrjú stig sem að við erum ánægðir með. Þetta var virkilega erfitt þannig að ég er þvílíkt sáttur."</i> sagði Haukur Páll eftir leikinn í kvöld.
Það var hart barist á Kópavogsvelli í kvöld og létu menn finna fyrir sér. Í heildina fóru átta gul spjöld á loft í leiknum.

„Það var hart tekist á, en ekkert of gróft fannst mér. Við hefðum alveg getað fengið fleiri gul spjöld og þetta var örugglega bara erfiður leikur að dæma."

Valur er búið vinna fjóra af fyrstu sjö leikjum sínum í deildinni og hafa allir sigrarnir komið á útivelli. Fréttaritari spurði Hauk Pál hvort að þeir vildu spila restina af mótinu að heiman.

„Það er asnalegt að segja það en það virðist vera þannig. Við þurfum bara að stíga upp og sækja stig á Hlíðarenda og spila bara betur þar." sagði Haukur Páll léttur að lokum.

Nánar er rætt við Hauk Pál í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.