19.07.22 - 08:47
Brynjar Ingi Erluson
Djed Spence til Tottenham (Staðfest)

Djed Spence er mættur til Tottenham

Mynd: Tottenham Hotspur

Djed Spence er mættur til Tottenham

Mynd: Tottenham Hotspur
Tottenham Hotspur gekk í dag frá kaupum á enska hægri bakverðinum Djed Spence, en hann kemur frá B-deildarliði Middlesbrough fyrir 12,5 milljónir punda.
Spence, sem er 21 árs gamall, gegndi lykilstöðu í liði Nottingham Forest á síðustu leiktíð er liðið kom sér upp í ensku úrvalsdeildina í gegnum umspilið.
Hann var þá á láni frá Middlesbrough. Forest vildi halda Spence, sem vildi þó reyna fyrir sér hjá sterkara liði.
Tottenham hefur verið í viðræðum við Boro síðustu vikur og eru kaupin nú loks staðfest. Hann gerir fimm ára samning við Tottenham sem greiðir Boro 12,5 milljónir punda. Boro gæti fengið átta milljónir punda til viðbótar ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
Spence er sjötti leikmaðurinn sem Tottenham kaupir fær í sumar á eftir Ivan Perisic, Fraser Forster, Clement Lenglet, RIcharlison og Yves Bissouma.

It's official ✅
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) July 19, 2022
Welcome to Spurs, @DjedSpence! pic.twitter.com/Ivgqa02Jr9