Fabio Silva til Anderlecht (Staðfest) - Framlengir við Wolves

Öll fjögur mörk Fabio Silva fyrir Wolves komu í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2020-21.

Mynd: EPA

Öll fjögur mörk Fabio Silva fyrir Wolves komu í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2020-21.

Mynd: EPA
Belgíska stórveldið Anderlecht hefur verið duglegt að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og var að krækja í framherjann Fabio Silva á eins árs lánssamningi frá Wolves.
Fabio Silva var keyptur til Wolves fyrir metfé sumarið 2020, um 35 milljónir punda, en hefur ekki tekist að láta ljós sitt skína á Englandi þrátt fyrir mikið af tækifærum.
Silva er 20 ára gamall og hefur aðeins skorað 4 mörk í 63 leikjum hjá Wolves. Hann hefur þó verið að raða inn mörkunum með yngri landsliðum Portúgal þar sem hann á 9 mörk í 13 leikjum með U19 og U21 liðunum.
Þessi efnilegi framherji er spenntur fyrir að spila fótbolta í Belgíu og vonast til að öðlast sjálfstraust þar. Markmiðið hjá Silva er að geta hjálpað Úlfunum í framtíðinni og þess vegna framlengdi hann samning sinn við félagið um eitt ár, til 2026.
Anderlecht er þegar búið að krækja í Sebastiano Esposito á lánssamningi frá Inter
ásamt Ishaq Abdulrazak frá Norrköping og Nilson Angulo frá LDU Quito í Ekvador.
