Fotbolti.net
19.07.22 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Maximiano og Cancellieri til Lazio (Staðfest)

Maximiano og Cancellieri til Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lazio er búið að festa kaup á portúgalska markverðinum Luis Maximiano sem kemur frá Granada fyrir rúmlega 10 milljónir evra.

Maximiano á að fylla í skarðið sem Thomas Strakosha og Pepe Reina skilja eftir sig eftir að hafa yfirgefið félagið á frjálsri sölu í sumar.

Maximiano er 23 ára gamall og féll úr efstu deild spænska boltans með Granada á síðustu leiktíð. Hann kom upp í gegnum unglingastarfið hjá Sporting í Portúgal.

Markvörðurinn á 24 leiki að baki fyrir yngri landslið Portúgals og gæti barist við hinn litháíska Marius Adamonis um byrjunarliðssæti undir stjórn Maurizio Sarri.

Þar að auki er Lazio búið að krækja í kantmanninn Matteo Cancellieri á lánssamningi frá Verona sem gildir út tímabilið.

Cancellieri er tvítugur kantmaður sem braust fram í sviðsljósið með Verona á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tvö mörk í fjórtán leikjum.

Hann hefur gert tvö mörk í sjö leikjum fyrir U21 landslið Ítalíu og hefur komið við sögu í einum leik með A-landsliðinu undir stjórn Roberto Mancini.

Lazio fær kaupmöguleika uppá 7 milljónir evra með lánssamningnum.

Maximiano og Cancellieri til Lazio (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.