Fotbolti.net
19.07.22 - 19:19
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ospina hafnaði Napoli fyrir Sádí-Arabíu (Staðfest)

Ospina hafnaði Napoli fyrir Sádí-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kólumbíski landsliðsmarkvörðurinn David Ospina mun reyna fyrir sér í Sádí-Arabíu á næstu leiktíð eftir að hafa skipt yfir til Al-Nassr á frjálsri sölu frá Napoli.

Ospina var með samningstilboð á borðinu frá Napoli en ákvað að hafna ítalska toppbaráttuliðinu til að fá stærra hlutverk og betri laun austan við Miðjarðarhafið.

Ospina, sem verður 34 ára í ágúst, hafði deilt markvarðarstöðunni hjá Napoli með Alex Meret í nokkur ár þar til á síðustu leiktíð. Ospina hrifsaði markmannsstöðuna til sín og gerði vel er Napoli endaði í þriðja sæti í Serie A, en samningur hans rann út eftir tímabilið.

Kólumbíumaðurinn vildi vera áfram hjá Napoli en gat ekki sætt sig við að taka launalækkun og valdi því að skipta yfir til Arabíu þar sem hann fær tveggja ára samning.

Ospina, sem á 124 leiki að baki fyrir Kólumbíu, var hjá Nice og Arsenal áður en hann flutti til Ítalíu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.