Williams, Bradley og fleiri lánaðir frá Liverpool (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Liverpool hefur sent nokkra efnilega leikmenn út á lánssamningum í sumar og var Rhys Williams að bætast við þann lista.
Williams er 21 árs gamall og stóð sig með sæmd þegar Liverpool þurfti á honum að halda fyrir tveimur árum þar sem hann spilaði 19 leiki fyrir félagið. Hann fékk ekki mikinn spiltíma á láni hjá Swansea á síðustu leiktíð og reynir nú fyrir sér með Blackpool.
Bakvörðurinn Conor Bradley á 8 landsleiki að baki fyrir Norður-Írland og mun leika með Jóni Daða Böðvarssyni og félögum í Bolton á lánssamningi. Hann er 19 ára gamall og kom við sögu í fimm leikjum með Liverpool á síðustu leiktíð.
Varnarmaðurinn Owen Beck, sem er skyldur Liverpool goðsögninni Ian Rush, hefur þá verið lánaður til Famalicao sem endaði í 8. sæti portúgölsku deildarinnar á síðustu leiktíð. Beck leikur fyrir U21 landslið Wales og kom við sögu í tveimur deildabikarsleikjum með Liverpool á síðustu leiktíð.
Anderson Arroyo mun þá spila með Alaves í B-deild spænska boltans eftir að félagið féll í vor. Arroyo er enn einn varnarmaðurinn sem Liverpool lánar út, 22 ára og með tæpa 20 landsleiki að baki fyrir yngri lið Kólumbíu, þar á meðal U23 og U20.
Billy Koumetio er líka varnarmaður og mun hann leika með austurríska stórliðinu Austria Vienna. Hann er 19 ára og á tvo leiki að baki fyrir U18 landslið Frakklands og tvo fyrir Liverpool.
Jakub Ojrzynski, Adam Lewis og Vitezslav Jaros hafa einnig verið lánaðir út. Þá er Loris Karius farinn frítt ásamt Ben Woodburn, sem fór til Preston, og Sheyi Ojo, sem er farinn til Cardiff City.
Að lokum var Tom Clayton, einnig varnarmaður, seldur til Swindon Town fyrir óuppgefið kaupverð. Clayton lék einnig sem miðjumaður með U21 liði Liverpool og var mikið í kringum byrjunarliðið í varaliðadeildinni. Hann er 21 árs gamall.


Mynd: EPA
