19.07.22 - 23:21
Ívan Guðjón Baldursson
Yildiz valdi Juve framyfir Bayern og Barca (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Juventus hefur staðfest félagsskipti Kenan Yildiz til félagsins og skrifar þessi efnilegi Þjóðverji undir þriggja ára samning við ítalska stórveldið.
Yildiz er aðeins 17 ára gamall og kemur til Juve á frjálsri sölu úr röðum FC Bayern. Táningurinn hafnaði meðal annars Bayern og Barcelona til að ganga í raðir Juve.
Yildiz er sóknartengiliður sem er jafnfættur og getur spilað á báðum köntunum. Hann kom upp í gegnum akademíuna hjá Bayern og mun spila með unglingaliði Juventus á komandi leiktíð.
Yildiz er fæddur í Þýskalandi en á 10 leiki að baki fyrir U17 landslið Tyrklands.
