Mónakó undirbýr nú tilboð í tvo leikmenn sem leika í ensku úrvalsdeildinni. Annars vegar með Southampton og hins vegar Chelsea.
Þetta eru þeir Mario Lemina og Tiemoue Bakayoko. Mónakó hefur til 2. september að klára kaupin.
Þetta eru þeir Mario Lemina og Tiemoue Bakayoko. Mónakó hefur til 2. september að klára kaupin.
Bakayoko gekk í raðir Chelsea frá Mónakó árið 2017 en hefur ekki staðið undir væntingum í bláu treyjunni. Hann var sendur á lán til AC Milan á síðustu leiktíð og náði sér ekki á strik fyrr en í síðustu leikjunum þar.
Lemina var orðaður við Manchester United og Arsenal í sumar en Southampton vildi halda leikmanninum.
Mónakó vill styrkja miðsvæðið en þar fyrir er til að mynda Cesc Fabregas.
Athugasemdir