Miðvörðurinn Gerard Pique hefur leikið mjög lítið í upphafi tímabils, en hann er bara búinn að koma við sögu í einum deildarleik með Barcelona til þessa.
Hann er búinn að sitja mikið á bekknum og er hann sagður ósáttur við það.
Fjölmiðillinn Sport á Spáni greinir frá því í dag að Pique hafi verið að kvarta mikið í liðsfélögum sínum um lítinn spiltíma.
Einnig er sagt frá því að Xavi, þjálfari liðsins, hafi heyrt af þessu og í kjölfarið sagt við miðvörðinn: „Núna færð þú bara að spila enn minna."
Xavi og Pique voru eitt sinn liðsfélagar, en núna er sagan sú að það andi köldu á milli þeirra tveggja.
Athugasemdir