Sadio Mane spilaði allan leikinn og skoraði annað marka Liverpool í 2-2 jafntefli gegn Everton um helgina.
Það hitnaði nokkrum sinnum í kolunum í leiknum þar sem Richarlison fékk rautt spjald fyrir ljóta tæklingu á Thiago Alcantara og Jordan Pickford sendi Virgil van Dijk á meiðslalistann næstu mánuðina.
Það var einhver púki í Mane í leiknum og náðist það á myndband þegar hann ákvað að bregða fæti fyrir Yerry Mina, varnarmann Everton, og fella hann. Mane valdi tímasetninguna vel og var með fullkomna sjónlínu á dómaranum sem sneri í aðra átt.
Mane fékk gult spjald fyrir annað atvik á 67. mínútu og er þetta annar leikurinn í röð sem senegalski framherjinn nælir sér í spjald.
Atvikið má sjá neðst í þessum hlekk.
Sadio Mané tackle on Yerry Mina after referee whistles for Richarlison foul on Thiago from r/soccer
Athugasemdir