Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 19. nóvember 2022 19:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benzema meiddist á æfingu - HM í hættu?
Mynd: Getty Images

Það er óvissa með þátttöku Karim Benzema landsliðsmanns Frakklands á HM en hann þurfti að hætta á æfingu liðsins vegna meiðsla.


Benzema hefur verið að æfa einsamall vegna hnémeiðsla að undanförnu en mætti á æfingu með liðinu í dag en þurfti að hætta eftir að hann fór að finna til í lærinu.

Þetta er mikið áfall fyrir Benzema og franska landsliðið þar sem þessi 34 ára gamli framherji er sjóðandi heitur eftir frábæra tíma með Real Madrid að undanförnu.

Líklegt þykir að Olivier Giroud leikmaður AC Milan verði í byrjunarliði franska liðsins á HM en þessi 36 ára gamli framherji hefur verið fasta maður hjá ítalska félaginu.

Hann hefur spilað 19 leiki og skorað 9 mörk og lagt upp þrjú.


Athugasemdir
banner
banner
banner