Sjáðu HM mörkin: Sigurmark Plata gegn Þýskalandi sendi Ekvador áfram

Leroy Sane skoraði sitt fyrsta mark á mótinu

Mynd: EPA

Ekvador vann Þýskaland 2-1 í lokaumferð í E-riðli heimsmeistaramótsins. Leroy Sane skoraði umdeilt mark strax á 2. mínútu en Nilson Angulo svaraði með glæsilegu skoti fyrir utan teig. Fyrsta mark Ekvador á mótinu.
Sane skoraði eftir aðeins tvær mínútur eftir frábæran undirbúning Aleksandar Pavlovic og Florian Wirtz.
Pavlovic lyfti boltanum yfir varnarmann Ekvador og kom honum á Wirtz, sem tók skemmtilega hreyfingu inn á teignum áður en hann lagði boltann til hliðar á Sane. Hann setti boltann örugglega neðst í vinstra hornið.
Ekvadorar voru brjálaðir og vildu fá dæmt hættuspark á Þjóðverja. Pavlovic lyfti fætinum hátt til að koma boltanum yfir varnarmann Ekvador og fóturinn fór nálægt andliti hans áður en boltinn barst á Wirtz. VAR-dómarar skoðuðu atvikið en sáu ekkert athugavert og markið fékk að standa.
Nilson Angulo jafnaði metin með hörkuskoti rétt fyrir utan teig. Sá þakkaði traustið en hann kom inn í byrjunarliðið fyrir þennan leik og gerði fyrsta mark liðsins á mótinu.
Ekvador hélt áfram að pressa í leit að sigurmarkinu og þegar tólf mínútur voru eftir kom það. Varamaðurinn Kevin Rodriguez sendi hornspyrnu inn á nærsvæðið þar sem Plata var mættur fram fyrir Neuer og potaði boltanum í netið.
Fílabeinsstrendingar mættu nýliðum Curacao á Lincoln Financial-leikvanginum í Philadelphia í Bandaríkjunum og unnu öruggan 2-0 sigur. Fílabeinsströndin er komin áfram í 32-liða úrslit.
Hér má sjá mörkin úr leikjunum:
Ekvador 2 - 1 Þýskaland
0-1 Leroy Sane ('2 )
1-1 Nilson Angulo ('9 )
2-1 Gonzalo Plata ('78 )
Curacao 0 - 2 Fílabeinsströndin
0-1 Nicolas Pepe ('7 )
0-2 Nicolas Pepe ('63 )