Fotbolti.net
25.06.26 - 22:59
Brynjar Ingi Erluson

Suður-Afríka er ekki lengur drasl - „Þá verð ég að éta minn sokk og biðjast afsökunar“

Suður-Afríka mætir Kanada í 32-liða úrslitum

Suður-Afríka mætir Kanada í 32-liða úrslitum

Canon

Mynd: EPA

Sérfræðingarnir í HM-stofunni fóru yfir Suður-Afríku og ótrúlegan viðsnúning liðsins í A-riðlinum, en liðið hafnaði í öðru sæti og mun spila við Kanada í 32-liða úrslitum.
Óskar Hrafn hraunaði yfir Suður-Afríku - „Þeir voru bara drasl“
TENGT EFNI

Óskar Hrafn hraunaði yfir Suður-Afríku - „Þeir voru bara drasl“

Óskar Hrafn Þorvaldsson fór mjög hörðum orðum um Suður-Afríku eftir slaka frammistöðu liðsins gegn gestgjöfum Mexíkó í fyrstu umferð HM.

Suður-Afríka fékk tvö rauð spjöld í þeim leik og kom sér í mjög erfiða stöðu í riðlinum. Liðið tók sig hins vegar saman í andlitinu, gerði jafntefli við Tékkland og vann síðan Suður-Kóreu í úrslitaleik riðilsins í lokaumferðinni.

Í HM-stofunni mildaði Óskar gagnrýni sína og viðurkenndi að Suður-Afríkumenn væru ekki lengur „drasl“.

„Sko, nú hélt ég svo langa ræðu um Suður-Afríkumenn eftir fyrsta leikinn og man hreinlega ekki hvort ég afskrifaði þá út mótið eða hvort ég var að tala um þennan einstaka leik. Ef að ég afskrifaði þá, þá verð ég auðvitað að éta sokk minn og biðjast afsökunar.“

„Það er fátt skemmtilegra í lífinu en að hafa rangt fyrir sér og þurfa að standa og viðurkenna að maður hafi haft rangt fyrir sér. Þegar einhver kemur og sýnir manni að eitthvað sem maður hélt er ekki rétt. Þeir eiga fyllilega skilið að taka annað sætið. Þeir voru betri aðilinn á móti Suður-Kóreu og unnu þennan leik sem allt snerist um.“

„Að því sögðu er ég ekki að sjá þá fara mjög djúpt inn í keppnina. Nei, mér finnst þeir ekki vera drasl. Þeir hafa tekið sig saman í andlitinu, spila eins og lið, haga sér eins og menn og farnir að koma boltanum á milli manna í eigin liði. Gulur gefur á gulan. Þannig nei þeir eru það alls ekki og eru vel komnir að fara upp úr þessum riðli,“
sagði Óskar.

Eiður Smári Guðjohnsen sagði að Suður-Afríka muni þó líklega detta úr leik í 32-liða úrslitum.

„Ég held að það sé sama hvaða liði þeir mæta, það verður erfitt. Þeir eiga skilið að fara upp úr þessum riðli og jafnvel fengið Óskar til að hafa ekki alveg rétt fyrir sér eftir fyrstu umferðina, en við höfum séð stemninguna í kringum kanadíska liðið og held að það verði of stór biti fyrir Suður-Afríku. Þeir geta verið sáttir með að koma sér í þessa stöðu, en munu fljótlega detta út, ef ekki bara í næsta leik,“ sagði Eiður í lokin.
Óskar Hrafn segir fátt skemmtilegra en að hafa rangt fyrir sér

Óskar Hrafn segir fátt skemmtilegra en að hafa rangt fyrir sér

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.