Fotbolti.net
25.06.26 - 22:06
Brynjar Ingi Erluson

HM: Sögulegur sigur Ekvador á Þýskalandi - Fílabeinsströndin áfram en Curacao úr leik

Ekvador er komið áfram í 32-liða úrslit

Ekvador er komið áfram í 32-liða úrslit

Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsströndin fylgir Þýskalandi áfram í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins. Ekvador vann sögulegan 2-1 sigur á Þýskalandi og fer sem eitt af bestu liðunum í 3. sæti áfram í næstu umferð.
Síðustu leikirnir í E-riðli heimsmeistaramótsins fóru fram í kvöld. Mikið var undir hjá þremur þjóðum í riðlinum en Fílabeinsströndin var í góðri stöðu fyrir lokaumferðina og kláraði sitt verkefni.

Fílabeinsstrendingar mættu nýliðum Curacao á Lincoln Financial-leikvanginum í Philadelphia í Bandaríkjunum og unnu öruggan 2-0 sigur.

Nicolas Pepe kom Fílabeinsströndinni yfir strax á 7. mínútu. Leikmenn Curacao fjölmenntu á vængmanninn Yan Diomande, sem er á mála hjá Leipzig og hefur verið orðaður við bæði Liverpool og Paris Saint-Germain síðustu daga.

Þeir náðu boltanum af Diomande en gerðu sér enga greiða með því að missa hann strax aftur til hans. Diomande keyrði upp að vítateignum og renndi boltanum fyrir á Pepe, sem stýrði honum snyrtilega í hægra hornið.

Curacao setti pressu á Fílabeinsströndina þegar leið á fyrri hálfleikinn og var 1-0 staðan í leikhléi alls ekki vonlaus fyrir lærisveina Dick Advocaat.

Þeir fengu hins vegar rothöggið þegar um hálftími var eftir. Ibrahim Sangare átti laglega sendingu á milli lína og inn á Pepe, sem tók á móti boltanum hægra megin í teignum, færði hann yfir á vinstri fótinn og skrúfaði honum glæsilega upp í fjærhornið.

Curacao hélt áfram að reyna en án árangurs. Fílabeinsströndin sigldi sigrinum heim, hafnaði í öðru sæti riðilsins með 6 stig og tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum.

Ótrúlegur sigur Ekvador

Ekvador vann dýrmætan 2-1 sigur á Þýskalandi á MetLife-leikvanginum í New Jersey og fer áfram sem eitt af liðunum með besta árangur í 3. sæti.

Ekvadorar vissu að ekkert annað en sigur kæmi þeim að gagni en byrjunin var erfið. Leroy Sane skoraði sitt fyrsta mark á mótinu strax á 2. mínútu.

Aleksandar Pavlovic lyfti fætinum hátt og kom boltanum yfir varnarmann Ekvador áður en hann barst á Florian Wirtz, sem dansaði inn á teiginn og lagði boltann til hliðar á Sane. Hann kláraði vel með skoti í vinstra hornið.

Ekvadorar vildu fá dæmt hættuspark á Pavlovic, enda fór fóturinn hátt upp, en VAR skoðaði atvikið og markið fékk að standa.

Þeir létu það ekki slá sig út af laginu og svöruðu aðeins nokkrum mínútum síðar. Nilson Angulo jafnaði þá með hörkuskoti rétt fyrir utan teig og skoraði þar með fyrsta mark Ekvador á mótinu.

Þetta var frábært svar hjá Ekvador, sem veitti Þjóðverjum alvöru leik og ætlaði sér greinilega að halda lífi í mótinu.

Í upphafi síðari hálfleiks vildu Þjóðverjar fá vítaspyrnu þegar Kai Havertz fór niður í teignum. Vítaspyrna var dæmd en ákvörðunin var tekin til baka eftir skoðun í VAR, þar sem Sane hafði brotið á Vite í aðdragandanum.

Enner Valencia komst í hörkufæri á 63. mínútu en Manuel Neuer varði vel. Skömmu síðar, rétt eftir vatnspásu, varð misskilningur á milli Jonathan Tah og Neuer. Valencia komst í boltann en náði ekki almennilegu skoti og lagði hann þess í stað á Gonzalo Plata, sem setti boltann rétt framhjá.

Ekvador hélt áfram að pressa í leit að sigurmarkinu og þegar tólf mínútur voru eftir kom það. Varamaðurinn Kevin Rodriguez sendi hornspyrnu inn á nærsvæðið þar sem Plata var mættur fram fyrir Neuer og potaði boltanum í netið.

Ótrúlega mikilvægt mark fyrir Ekvador, sem vann 2-1 sigur, og sá fyrsti í sögunni gegn Þýskalandi og er nú í efsta sæti þeirra liða sem hafna í þriðja sæti með 4 stig og markatöluna 2-2. Alls fara átta þjóðir sem enda í þriðja sæti áfram í 32-liða úrslitin.

Ekvador er búið að bóka sæti sitt og mun eins og staðan er núna mæta Englendingum. Þýskaland mun að öllum líkindum mæta Paragvæ. Fílabeinsströndin mun mæta Frakklandi eða Noregi.

Curacao 0 - 2 Fílabeinsströndin
0-1 Nicolas Pepe ('7 )
0-2 Nicolas Pepe ('63 )

Ekvador 2 - 1 Þýskaland
0-1 Leroy Sane ('2 )
1-1 Nilson Angulo ('9 )
2-1 Gonzalo Plata ('78 )
Fílabeinsströndin fór örugglega áfram

Fílabeinsströndin fór örugglega áfram

Canon

Mynd: EPA

Það var mikill fögnuður er Ekvador skoraði sigurmarkið

Það var mikill fögnuður er Ekvador skoraði sigurmarkið

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.