Fotbolti.net
19.12.23 - 15:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Davíð Snær seldur frá FH til Álasunds (Staðfest)

Davíð Snær Jóhannsson.

Davíð Snær Jóhannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Snær Jóhannsson hefur yfirgefið FH og gengið í raðir Álasunds í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH sem var gefin út rétt í þessu.
Davíð Snær er 21 árs gamall miðjumaður sem er uppalinn í Keflavík. Hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar áður en hann fór til Lecce á Ítalíu í byrjun árs 2022.

Hann sneri aftur heim sumarið 2022 og gekk þá í raðir FH. Hann átti virkilega flott tímabil í ár og er núna aftur farinn erlendis, í þetta skiptið til Noregs.

„Við munum að sjálfsögðu sakna Davíðs Snæs, hann var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður okkar á síðasta tímabili," segir Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála hjá FH.

„En þetta sýnir á sama tíma að við gerum að gera vel. Við keyptum Davíð fyrir einu og hálfu ári síðan og erum búnir að hjálpa honum að taka næsta skref á sínum ferli. Við getum boðið ungum leikmönnum upp á mjög góðar aðstæður til að þróa leik sinn, bæði er aðstaðan góð hjá okkur og þjálfarateymið okkar mjög fært og það á stóran þátt í því að Davíð fær þetta tækifæri núna. Við óskum Davíð Snæ góðs gengis í Noregi og þökkum honum fyrir hans störf fyrir Fimleikafélagið."

Álasund féll úr norsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili og spilar í B-deild Noregs á næsta ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.