KFA fær Khalok frá Ólafsvík (Staðfest)

Í leik með Víkingi Ólafsvík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í leik með Víkingi Ólafsvík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KFA hefur fengið Abdelhadi Khalok El Bouzarrar, sem oftast er kallaður Khalok, til félagsins. Khalok kemur til félagsins eftir að hafa skorað níu mörk í 18 leikjum fyrir Víking Ólafsvík í sumar.
Khalok er uppalinn í Cadiz á Spáni en hann á ættir að rekja til Marokkó.
Khalok spilaði með nokkrum liðum í neðri deildum Spánar áður en hann lagði land undir fót og hélt til Íslands.
„Khalok er öflugur á sprettinum, góður í að dribbla, búa til færi og skora sjálfur. Einnig er Khalok öflugur í loftinu og hann á vonandi eftir að nýtast liðinu vel í þeirri baráttu sem fram undan er næsta sumar," segir í tilkynningu KFA.
„Stjórn KFA býður Khalok velkominn til félagsins og hlakka til að sjá hann með liðinu næsta sumar."
KFA var nálægt því að fara upp í Lengjudeildina í sumar en missteig sig á lokasprettinum. Liðið stefnir á að komast upp næsta sumar.