Ole Martin tekinn við varaliði Brann (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarinn efnilegi Ole Martin Nesselquist tilkynnti í lok nóvember að hann væri hættur sem aðstoðarþjálfari KR til að taka við sem aðalþjálfari hjá ónefndu félagi í heimalandi sínu, Noregi.
Nú hefur verið staðfest að þetta félag er Brann, en Ole Martin mun stýra varaliðinu þar á bæ.
Ole Martin er aðeins 30 ára gamall og er hann spenntur fyrir starfinu hjá Brann, sem er einn af stærri klúbbunum í Noregi.
Brann endaði í öðru sæti norsku deildarinnar í ár eftir að hafa komist upp úr B-deildinni í fyrra. Sveiflukennt gengi hjá þessu áhugaverða félagi, sem náði sama árangri árið 2016 - þegar liðið endaði í öðru sæti norsku deildarinnar á sínu fyrsta ári eftir að hafa komist upp.
„Ég held að flestir þjálfarar í Noregi hafi áhuga á að starfa fyrir Brann. Þetta er stórt félag í mikilli fótboltaborg. Ég er spenntur fyrir að flytja til Bergen á nýju ári," sagði Ole Martin meðal annars við undirskrift á samningi.
Ole Martin hefur starfað hjá Moss, Strömmen og Viking í Noregi. og var hann kjörinn kjörinn sem efnilegasti þjálfari Noregs árið 2017.
Varalið Brann leikur í C-deild norska boltans og fékk 28 stig úr 26 umferðum í ár.