Tómas Johannessen til AZ (Staðfest)

Tómas Johannessen.

Mynd: AZ

Tómas Johannessen.

Mynd: AZ
Hinn mjög svo efnilegi Tómas Johannessen hefur gengið til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið AZ Alkmaar og gerir við það þriggja ára samning.
Tómas er 16 ára gamall og lék þrátt fyrir ungan aldur lykilhlutverk með meistaraflokki Gróttu í sumar. Hann er uppalinn Seltirningur og Gróttumaður en lék um skeið með Val.
„Knattspyrnudeild Gróttu óskar Tómasi og fjölskyldu hans innilega til hamingju með þetta stóra skref og hlakkar til að fylgjast með ævintýrum hans á næstu misserum," segir í tilkynningu Gróttu.
Á heimasíðu AZ er greint frá skiptunum en þar segir að Tómas muni fyrst um sinn leika með U18 liði hollenska félagsins. Hann var nýverið á reynslu hjá AZ þar sem hann heillaði menn upp úr skónum.
„Tómas er mjög teknískur sóknarmiðjumaður sem hleypur mikið og skapar mikið," segir Paul Brandenburg, yfirþjálfari akademíunnar hjá AZ. „Hann veit líka hvar markið er. Hann getur komið inn í aðalliðið á næstu árum."
Það ríkir mikil Íslendingahefð hjá AZ en áður fyrr léku Albert Guðmundsson, Aron Jóhannsson, Grétar Rafn Steinsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Kolbeinn Sigþórsson fyrir félagið.