Fotbolti.net
20.01.26 - 22:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Meistaradeildin: Mbappe með tvennu gegn uppeldisfélaginu - Gyökeres innsiglaði sigurinn

FCK náði í stig gegn Napoli - PSG tapaði

Meistaradeildin: Mbappe með tvennu gegn uppeldisfélaginu - Gyökeres innsiglaði sigurinn
Canon

Mynd: EPA

Arsenal er með fullt hús stiga fyrir lokaumferðina í deildarkeppni Meistaradeildarinnar eftir sigur á Inter í kvöld og hefur gulltryggt sér sæti í 16-liða úrslitum.

Gabriel Jesus átti frábæran leik en hann kom liðinu yfir snemma leiks. Jurrien Timber átti skot í varnarmann en boltinn barst í átt að Jesus sem skutlaði sér á boltann og skoraði.
Petar Sucic jafnaði metin en Jesus bætti öðru markinu við eftir klukkutíma. Arsenal var með verðskuldaða forystu í hálfleik og Viktor Gyökeres innsiglaði sigur liðsins þegar hann skoraði með skoti úr D-boganum undir lokin.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK sem fékk Napoli í heimsókn. Thomas Delaney, leikmaður FCK, fékk rautt spjald eftir rúmlega hálftíma leik. Jacob Neestrup, stjóri FCK, gerði þá taktíska breytingu og tók Viktor af velli.

Aðeins fjórum mínútum eftir að Delaney var rekinn af velli kom Scott McTominay Napoli yfir.

Þegar rúmur stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma fékk FCK vítaspyrnu. Jordan Larsson lét Vanja Milinkovic-Savic verja vítið frá sér en Larsson náði boltanum aftur og skoraði og bjargaði stigi fyrir FCK.

Kylian Mbappe skoraði tvennu þegar Real Madrid vann stórsigur gegn Mónakó sem er uppeldisfélag Mbappe. Cristian Romero og Dominic Solanke skoruðu mörk Tottenham þegar liðið vann Dortmund en Wilson Odobert lagði upp bæði mörkin.

Evrópumeistarar PSG lentu undir gegn Sporting en Khvicha Kvaratskhelia jafnaði metin en kólumbíski framherjinn Luis Suarez tryggði Sporting dramatískan sigur. Olympiakos er komið í umspilssæti eftir frábæran sigur gegn Leverkusen. Þá vann Ajax sterkan sigur á Villarreal.

Real Madrid 6 - 1 Monaco
1-0 Kylian Mbappe ('5 )
2-0 Kylian Mbappe ('26 )
3-0 Franco Mastantuono ('51 )
4-0 Thilo Kerher ('55 , sjálfsmark)
5-0 Vinicius Junior ('63 )
5-1 Jordan Teze ('72 )
6-1 Jude Bellingham ('80 )

Sporting 2 - 1 Paris Saint Germain
1-0 Luis Suarez ('74 )
1-1 Khvicha Kvaratskhelia ('79 )
2-1 Luis Suarez ('90 )

FC Kobenhavn 1 - 1 Napoli
0-1 Scott McTominay ('39 )
0-1 Jordan Larsson ('71 , Misnotað víti)
1-1 Jordan Larsson ('72 )
Rautt spjald: Thomas Delaney, FC Kobenhavn ('35)

Villarreal 1 - 2 Ajax
1-0 Tani Oluwaseyi ('49 )
1-1 Oscar Gloukh ('61 )
1-2 Oliver Edvardsen ('90 )

Olympiakos 2 - 0 Bayer
1-0 Costinha ('2 )
2-0 Mehdi Taremi ('45 )

Tottenham 2 - 0 Borussia D.
1-0 Cristian Romero ('14 )
2-0 Dominic Solanke ('37 )
Rautt spjald: Daniel Svensson, Borussia D. ('24)

Inter 1 - 3 Arsenal
0-1 Gabriel Jesus ('10 )
1-1 Petar Sucic ('18 )
1-2 Gabriel Jesus ('31 )
1-3 Viktor Gyokeres ('84 )

Meistaradeildin

#LiðLmunStig
1PSG4+1512
2Real Madrid4+612
3Arsenal4+510
4Como4+139
5Barcelona4+89
6Aston Villa4+69
7Man City4+59
8Liverpool4+49
9Club Brugge4+49
10Sporting4+49
11Betis4+29
12Dortmund4+29
13Bayern4+78
14Stuttgart4+37
15Inter4+26
16LASK Linz4+16
17Man Utd406
18Galatasaray4-16
19Fenerbahce4-55
20Roma4+24
21Shakhtar D404
22Viking FK4-14
23Atletico Madrid4-14
24PSV4-14
25Bodö/Glimt4-54
26Porto4-13
27Napoli4-53
28Villarreal4-63
29AEK4-63
30RB Leipzig4-63
31Sabah FK4-63
32Feyenoord4-73
33Lens4-123
34Slavia Prag4-41
35Lille4-61
36Slovan4-160
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.