Varnarmaðurinn reyndi Ingi Freyr Hilmarsson hefur gengið til liðs við nýliða KF í 2. deildinni.
Ingi Freyr er uppalinn á Ólafsfirði en hann lék með KS/Leiftri, nú KF, í byrjun ferilsins.
Ingi Freyr er uppalinn á Ólafsfirði en hann lék með KS/Leiftri, nú KF, í byrjun ferilsins.
Hinn 32 ára gamli Ingi hefur leikið með KA og Þór lengst af á ferli sínum en hann spilaði ekkert síðastliðið sumar.
Ingi á að baki 49 leiki í efstu deild og 109 leiki í næstefstu deild á ferli sínum.
KF hefur leik í Lengjubikarnum á sunnudaginn þegar liðið mætir Einherja í Boganum.
Athugasemdir