Southend United er búið að staðfesta komu Patriks Sigurðar Gunnarssonar til félagsins á lánssamningi út tímabilið.
Patrik kemur inn í liðið fyrir Mark Oxley sem meiddist í tapi gegn Coventry um helgina.
Nathan Bishop var seldur til Manchester United í janúar og þá er Harry Seaden einnig frá vegna meiðsla. Patrik mun því berjast við hinn 18 ára gamla Callum Taylor um byrjunarliðssæti í næstu leikjum.
Patrik, 19 ára, er samningsbundinn Brentford sem leikur í Championship deildinni. Southend leikur í næstu deild fyrir neðan og er svo gott sem fallið niður í D-deildina eftir hörmulegan fyrri hluta tímabils.
We're delighted to announce the signing of goalkeeper Patrik Gunnarsson on an emergency loan from @BrentfordFC
— Southend United (@SUFCRootsHall) February 20, 2020
Full details 👇#Blues
Athugasemdir