Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 20. febrúar 2020 17:36
Elvar Geir Magnússon
Þrír ungir leikmenn í Þrótt Vogum (Staðfest)
Mynd: Samsett/ÞrótturV
Þróttur Vogum, sem leikur í 2. deild, hefur fengið til sín þrjá unga leikmenn fyrir baráttunda framundan.

Tilkynningin frá Þrótti:

Þrír efnilegir semja við Þrótt Vogum.
Tómas Hafberg er 19 ára ungur og efnilegur leikmaður sem kemur frá Víkingi Reykjavík. Tómas spilar sem bakvörður og hefur verið fastamaður í sterkum 2. flokki Víkings síðustu árin.

Kristjan Örn Marko Stosic er 21 ára miðjumaður og hefur verið í námi í Bandaríkjunum síðustu árin. Marko fór í gegnum starfið hjá Fjölni og spilaði með 2. flokki Breiðablik. Marko spilaði með Hamri frá Hveragerði síðustu tvö sumur.

Guðmundur Már Jónasson er 20 ára og spilaði 13 leiki fyrir Hauka á síðasta ári. Guðmundur er framherji fór í gegnum yngriflokkastarf FH og spilaði líka fyrir KV á síðasta ári.

Tómas, Kristjan og Guðmundur spiluðu allir fyrir Þróttara í Fótbolta.net mótinu sem fram fór á dögunum og verða því löglegir á morgun þegar Þróttarar mæta KV í Lengjubikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner