Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. apríl 2019 17:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Juventus ítalskur meistari (Staðfest)
Juventus er ítalskur meistari 2019.
Juventus er ítalskur meistari 2019.
Mynd: Getty Images
Juventus 2 - 1 Fiorentina
0-1 Nikola Milenkovic ('6 )
1-1 Alex Sandro ('37 )
2-1 German Pezzella ('53 , sjálfsmark)

Juventus er búið að tryggja sér ítalska meistaratitilinn en það var ljóst eftir 2-1 sigur liðsins á Fiorentina í dag.

Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir heimamenn þar sem gestirnir komust yfir í upphafi leiks, Nikola Milenkovic skoraði mark gestanna.

Alex Sandro jafnaði fyrir Juventus áður flautað var til loka fyrri hálfleiks. Sigurmark Juventus var sjálfsmark sem German Pezzella skoraði þegar seinni hálfleikur var átta mínútna gamall.

Niðurstaðan 2-1 sigur heimamanna og Juventus er því búið að vinna deildina á Ítalíu átta ár í röð. Juventus er með 87 stig, næsta lið á eftir þeim er Napoli sem er með 67 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner