Guðfinnur Þór snýr aftur til Kára (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári er búinn að krækja sér í nýjan leikmann fyrir átök sumarsins í 3. deild karla. Sá heitir Guðfinnur Þór Leósson og kemur úr röðum Aftureldingar.
Guðfinnur Þór, einnig þekktur sem Guffi, er fæddur 1999 og spilaði 16 leiki með Aftureldingu í Lengjudeildinni í fyrra.
Hann fer því niður um tvær deildir til að spila með Kára og verður spennandi að fylgjast með Guffa sem átti fínt tímabil með Mosfellingum í fyrra.
Guffi verður klár í slaginn með Kára strax í dag þegar liðið tekur á móti Víði í Akraneshöllinni.
Guðfinnur hóf sinn meistaraflokksferil með Kára árið 2016 og snýr því aftur heim með þessum félagsskiptum.
Hann á leiki að baki með Víking Ólafsvík og Aftureldingu í Lengjudeildinni, auk þess að eiga þrjá leiki að baki fyrir U16 ára landsliðið.
„Við bjóðum Guðfinn svo sannarlega velkominn aftur í Kára og hvetjum fólk til að mæta á leikinn á morgun klukkan 14:00," segir meðal annars í yfirlýsingu frá Kára.



