Fotbolti.net
20.06.20 - 20:55
Arnar Laufdal Arnarsson

Diddi: Ólýsanleg tilfinning

Auglýsing
Alvöru frammistaða frá Didda í dag

Alvöru frammistaða frá Didda í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i> "Þetta er bara ólýsanleg tilfinning, ætla ekki að ljúga það var ágætis fiðringur í manni fyrir leik en ég held það sé bara eðlilegt, bara mikilvægt að stilla hausinn rétt og koma kaldur inn í þessar aðstæður" </i> Sagði Sigurður Hrannar Björnsson eftir ótrúlegan sigur gegn KR í dag.

<i> "Ég er búinn að fylgjast með Arnari núna í tvö ár, Arnar er einn af, ef ekki besti markmaðurinn í þessari deild og ég reyndi bara að apa aðeins eftir honum í vikunni, fór mikið og lyfti og fór snemma að sofa, borðaði vel og teygði" </i>
Diddi fékk mikla gagnrýni eftir leikinn gegn FH, hafði það einhver áhrif á hann?

"Nei það hafði engin áhrif á mig, þeir sem horfðu á leikinn sáu ég var að verja vel, mér leið bara mjög vel í FH leiknum og fannst ég standa mig mjög vel, gerði mistök og þegar markmenn gera mistök kostar það mark en ég tók bara það jákvæða úr leiknum inn í þennan leik"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.