Fotbolti.net
20.06.25 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Þrjú íslensk og fleiri erlend félög vilja fá Oliver Heiðars

Þrjú íslensk og fleiri erlend félög vilja fá Oliver Heiðars
Canon

Mynd: Raggi Óla

Oliver Heiðarsson er 24 ára sóknarmaður sem var í fyrra valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar þegar ÍBV vann deildina.

Hann byrjaði tímabilið í Bestu deildinni vel, skoraði fjögur mörk í fyrstu níu leikjunum, en meiddist í síðasta mánuði og verður áfram frá næstu vikurnar vegna meiðsla á fæti.

Bæði KA og Valur reyndu að fá hann í vetur en ekkert varð úr því.

Oliver á fimm mánuði eftir af samningi sínum, samkvæmt heimasíðu KSÍ rennur samningur hans við ÍBV út 16. nóvember og mega önnur félög ræða við hann um að ganga í raðir þess eftir að þessu tímabili lýkur, en þau verða að láta ÍBV vita af því.
Æfði með Everton og setur stefnuna út - „Ógeðslega góð upplifun"
TENGT EFNI

Æfði með Everton og setur stefnuna út - „Ógeðslega góð upplifun"

ÍBV reyndi á síðasta ári að framlengja við Oliver en hann kaus að gera það ekki.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Valur, KA og ÍA áhuga á því að fá Oliver í sínar raðir.

Þá eru fjölmörg erlend félög sem fylgjast vel með. Félög frá Danmörku, Króatíu og Svíþjóð eru með augastað á Oliver.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar eftir tæpar fjórar vikur, eða um það leyti sem Eyjamenn vonast til að Oliver snúi aftur á völlinn.

Það er alls ekki útilokað að Oliver klári tímabilið með ÍBV og haldi möguleikum sínum áfram opnum, en ef félag vill fá hann í glugganum þá þarf að kaupa hann frá ÍBV.
Þrjú íslensk og fleiri erlend félög vilja fá Oliver Heiðars
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrjú íslensk og fleiri erlend félög vilja fá Oliver Heiðars
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.