HM: Lánlausir Tyrkir úr leik eftir tap gegn tíu Paragvæjum

Mynd: EPA

Ivan Barton nýtti flautuna svo sannarlega í leiknum.

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tyrkland 0 - 1 Paragvæ
0-1 Matias Galarza ('2 )
Rautt spjald: Miguel Almiron, Paragvæ ('45)

Paragvæ sigraði Tyrkland í seinni leik næturinnar á HM. Sigurmark leiksins kom eftir rúmlega mínútu leik en Matias Galarza lét þá vaða af 24 metra færi fyrir utan teig Tyrkja, smellhitti boltann sem rataði í bláhornið á marki Tyrkja.
Tyrkir voru með boltann 78% af leiknum, áttu 32 marktilraunir og náðu að skapa sér nokkrar fínar stöður en inn í markið vildi boltinn ekki. Það vantaði mikið upp á gæðin í leik Tyrkja og ein af þeirra stærstu stjörnum, Kenan Yildiz, sýndi lítið í leiknum.
Í uppbótartíma fyrri hálfleiks fékk Miguel Almiron leikmaður Paragvæ beint rautt spjald fyrir að segja eitthvað við leikmann Tyrkja en hann gerði það með hönd fyrir munninum og það má ekki. Flautuglaður dómari leiksins, Ivan Barton, fór í skjáinn og eftir aðstoð frá VAR gaf hann Almiron rauða spjaldið og var mjög ákveðinn þegar hann sagði áhorfendum á Levi's leikvanginum frá niðurstöðu sinni. Barton sparaði ekki flautin í leiknum og var duglegur við að reka á eftir mönnum.
Varnarmaðurinn Merih Demiral komst hvað næst því að jafna metin á sjöundu mínútu uppbótartíma en skalli hans úr teignum fór rétt framhjá marki Paragvæja.
Leikmenn Paragvæ lögðu allt hvað þeir höfðu í leikinn og þurfti oft að stöðva leikinn í seinni hálfleik vegna þess að menn sátu eftir á vellinum. Paragvæ mætir Ástralíu í úrslitaleik um 2. sæti riðilsins í lokaumferðinni.
Tyrkir eru hins vegar úr leik í keppninni fyrir lokaumferð riðilsins þar sem þeir geta ekki komist úr botnsæti riðilsins út af innbyrðis viðureignum. Þeir eiga leik eftir gegn Bandaríkjunum sem eru með sex stig en hafa tapað gegn bæði Ástralíu og Paragvæ sem eru með þrjú stig. Það er ljóst að það eru mikil vonbrigði fyrir Tyrki sem sitja í 22. sæti heimslistans.
Alls hafa Tyrkir átt 62 marktilraunir í mótinu án þess að skora. Liðið hefur átt alls 102 snertingar í teig andstæðinganna og verið 75% leikjanna með boltann.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!