Höfnuðu stóru tilboði frá Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle United hefur hafnað 80 milljóna punda tilboði frá Tottenham í ítalska landsliðsmanninn Sandro Tonali. Þetta segir Keith Downie hjá Sky Sports.
David Ornstein greindi frá því fyrr í dag að Tottenham væri í viðræðum við Newcastle um Tonali.
Samkvæmt enskum miðlum er Newcastle opið fyrir því að selja Tonali í sumarglugganum.
Downie hjá Sky segir að Newcastle hafi hafnað fyrsta tilboði Tottenham, sem hljóðaði upp á 80 milljónir punda og á að hafa komið á borðið fyrr í vikunni.
Newcastle hafnaði því um hæl en talið er að félagið vilji fá í kringum 100 milljónir punda fyrir ítalska miðjumanninn.
Manchester City hefur einnig áhuga á Tonali, sem á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá Newcastle.
Hann gekk í raðir enska félagsins frá AC Milan fyrir 55 milljónir punda árið 2023.