20.07.13 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Elí Hlynsson frá FH til BÍ/Bolungarvíkur (Staðfest)

Ingimar Elí í leik með BÍ/Bolungarvík í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH hefur lánað miðjumanninn Ingimar Elí Hlynsson til BÍ/Bolungarvíkur út tímabilið.
Ingimar sem er 21 árs gamall er kominn með leikheimild og má spila gegn Völsungum í dag.
Ingimar Elí var meiddur í byrjun tímabilsins en hefur komið inn í leikmannahóp FH liðsins að undanförnu.
Hann var á láni hjá BÍ/Bolungarvík í fyrra og spilaði þá 21 leik í deild og bikar.
Hann er uppalinn á Ólafsfirði og hefur áður spilað með KS/Leiftri og síðar KF sem er sama lið.