20.07.19 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Blandar Everton sér í baráttuna um Zaha?

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha vill fara frá Crystal Palace og samkvæmt Sky Sports er hann <a href="https://fotbolti.net/news/18-07-2019/zaha-segir-crystal-palace-ad-hann-vilji-fara" target="_blank">efstur á óskalista Unai Emery, stjóra Arsenal</a>.
Palace hafnaði 40 milljón punda tilboði frá Arsenal fyrr í þessum mánuði, en búist er við öðru tilboði frá Arsenal á næstu dögum.
Evening Standard segir frá því að Everton hafi líka áhuga á 26 ára gamla kantmanninum.
Everton er að selja hinn efnilega Ademola Lookman til RB Leipzig í Þýskalandi. Félagið mun fá 22,5 milljónir punda fyrir hann og er tilbúið að berjast við Arsenal um Zaha.
Crystal Palace metur Zaha á 80 milljónir punda.
Spurning er hvort hann vilji fara til Everton, en með félaginu leikur landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson.