Fotbolti.net
20.07.22 - 10:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Dybala skrifar undir þriggja ára samning við Roma (Staðfest)

Dybala skrifar undir þriggja ára samning við Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Roma

Hinn 28 ára gamli Paulo Dybala hefur skrifað undir þriggja ára samning við Roma. Dybala kemur frá Juventus þar sem hann hefur verið frá árinu 2015, Roma greiðir ekki kaupverð fyrir Dybala þar sem hann varð samningslaus í sumar.

Hann hefur fimm sinnum orðið ítalskur meistari og kom til Juventus frá Palarmo. Hjá Juve vann hann ítalska bikarinn fjórum sinnum og ofurbikar Ítalíu þrisvar.

Dybala er Argentínumaður sem var valinn verðmætasti leikmaður Serie A árið 2020 og hefur fjórum sinnum verið valinn í lið tímabilsins.
Dybala á að baki 34 landsleiki og skoraði þrennu í leik gegn Ítalíu í síðasta mánuði. Hann er þegar mættur til æfinga hjá Roma.

Dybala verður númer 21 hjá Roma. Nemanja Matic gekk í raðir Roma í síðasta mánuði og fékk treyju númer 21. Hann tók ákvörðun að leyfa Dybala að fá það númer og verður númer átta. Dybala er númer 21 í landsliðinu og var númer 21 fyrstu tvö tímabilin hjá Juve.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.