Fotbolti.net
20.07.22 - 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keflavík fær Snædísi frá Stjörnunni (Staðfest)

Keflavík fær Snædísi frá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Keflavík hefur fengið Snædísi Maríu Jörundsdóttur frá Stjörnunni á láni út tímabilið. Snædís er fædd árið 2004 og kom við sögu í sjö leikjum með Stjörnunni fyrri hluta tímabilsins.

Hún á að baki tíu leiki með U16-U19 og hefur í þeim skorað fimm mörk. Snædís spilar sem framherji.
Keflavík missir Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur aftur til Breiðabliks en hún var á láni fyrri hlutann.

Keflavík er í 7. sæti Bestu deildarinnar og Stjarnan er í 3. sæti. Næsti leikur Keflavíkur er gegn Breiðabliki 4. ágúst.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.