Leeds lánar Shackleton og Cresswell til Millwall (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Millwall er búið að staðfesta komu Jamie Shackleton og Charlie Cresswell á eins árs lánssamningi frá Leeds United.
Shackleton er 22 ára miðjumaður sem lék mikilvægt í liði Leeds þegar það fór upp í úrvalsdeildina fyrir rúmlega tveimur árum síðan.
Hann er uppalinn hjá Leeds en hefur aðeins komið við sögu í 27 úrvalsdeildarleikjum á tveimur árum í efstu deild.
Shackleton lék þrjá leiki fyrir U20 landslið Englands og á þessi miðjumaður tvö ár eftir af samningi sínum við Leeds.
Cresswell verður tvítugur í haust og kom við sögu í fimm úrvalsdeildarleikjum hjá Leeds á síðustu leiktíð. Hann leikur sem miðvörður og á sex leiki að baki fyrir U21 landslið Englands.
Cresswell þykir mikið efni og er að fara út á sínum fyrsta lánssamningi.
Hann er samningsbundinn Leeds til 2025 og vonast félagið til að hann springi út á sínu fyrsta alvöru keppnistímabili.


Mynd: EPA
