Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 20. júlí 2022 21:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Nunez mun skora meira en Haaland, ég held það í alvöru"
Mynd: Getty Images

Paddy Pimblett er eitt stærsta nafnið í UFC bardagaíþróttarheiminum í dag.


Hann er grjótharður stuðningsmaður Liverpool og er duglegur að tjá sig um liðið. Hann var til viðtals hjá Sky Sports þar sem hann tjáði sig um komandi tímabil.

„Ég hef alltaf fulla trú á Liverpool, þeir eru að fara vinna deildina," sagði Pimblett.

Hann hefur trú á því að Darwin Nunez muni skora fleiri mörk en Erling Haaland leikmaður Man City.

„Ég hef fulla trú á Nunez. Það hefur verið hlegið af mér fyrir að segja að Nunez muni skora meira en Haaland en ég held það í alvöru. Haaland er mikið meiddur og ég held að hann muni missa af miklu á tímabilinu vegna meiðsla. Nunez vill spila alla leiki, hann missir ekki af mörgum," sagði Pimblett.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner