England er 2-1 yfir gegn Spáni í fyrsta leik 8 liða úrslitanna á EM kvenna á Englandi.
Það er komið fram í síðari hálfleik framlengingarinnar en Spánverjar komust yfir snemma í síðari hálfleik venjulegs leiktíma. England jafnaði metin undir lokin.
Georgia Stanway kom Englandi yfir eftir sex mínútna leik í framlengingunni með stórkostlegu skoti fyrir utan teig.
Stanway skrifaði undir þriggja ára samning við Bayern Munchen í maí. Þar hittir hún fyrir íslensku landsliðskonurnar Cecilíu Rán Rúnarsdóttur, Glódís Perlu Viggósdóttur og Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur.
Markið má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir