Svanberg og Thorsby í þýska boltann (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Wolfsburg var að festa kaup á öflugum miðjumönnum úr ítölsku Serie A deildinni, hinum sænska Mattias Svanberg og norska Morten Thorsby.
Wolfsburg borgar 9 milljónir evra fyrir Svanberg sem er 23 ára gamall og á 123 leiki að baki á fjórum árum hjá Bologna.
Svanberg kom upp í gegnum akademíuna hjá Malmö og er fastamaður í sænska landsliðinu með 21 leik að baki.
Svanberg er fimmti leikmaðurinn sem félagið nælir sér í þetta sumarið. Wolfsburg borgaði 8 milljónir fyrir Bartol Franjic frá Dinamo Zagreb, 5 milljónir fyrir Patrick Wimmer frá Arminia Bielefeld sem féll um deild, 2 milljónir fyrir Kilian Fischer og þá kom pólski kantmaðurinn Jakub Kaminski frá Lech Poznan fyrir óuppgefna upphæð.
Thorsby er einnig búinn að skipta yfir til Þýskalands. Union Berlin borgar aðeins þrjár milljónir fyrir þennan miðjumann sem spilaði 96 leiki á þremur árum hjá Sampdoria.
Thorsby er 26 ára gamall og á 15 landsleiki að baki fyrir Noreg. Hann kom upp í gegnum akademíuna hjá Stabæk og hefur einnig spilað fyrir Heerenveen.
Thorsby er hvorki meira né minna en tíundi leikmaðurinn sem gengur í raðir Union Berlin í sumar. Union náði óvæntu fimmta sæti í vor og leikur því í Evrópudeildinni í haust.
Félagið er búið að krækja í Jordan Siebatcheu frá Young Boys fyrir 6 milljónir evra, Jamie Leweling frá Greuther Furth fyrir 4 milljónir og Paul Seguin á frjálsri sölu frá sama félagi.
Janik Haberer, Tim Skarke, Danilho Doekhi og Milos Pantovic eru komnir á frjálsri sölu á meðan Lennart Grill og Diogo Leita eru komnir á lánssamningum.
Félagið er þó einnig búið að losa sig við leikmenn og seldi Taiwo Awoniyi, Marcus Ingvartsen og Leon Dajaku auk þess að hleypa fimm leikmönnum burt á frjálsri sölu.


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
