Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 20. september 2021 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jón Dagur átti þátt í marki Mikaels
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mikael Anderson byrjar ferilinn af krafti hjá AGF í Dannmörku.

Hann skoraði annað mark liðsins í 2-0 sigri gegn Silkeborg í dag, átti frábært skot eftir hornspyrnu frá Jóni Degi Þorsteinssyni. Stefán Teitur Þórðarson var í byrjunarliði Silkeborg en var tekinn af velli undir lok leiksins.

Stefán fékk að líta gula spjaldið á 40. mínútu. Mikael og Jón Dagur fóru einnig í svörtu bókina hjá dómaranum. Jón fékk gula spjaldið fyrir dýfu á 60. mínútu og hann var heppinn að fá ekki sitt annað gula spjald fyrir dýfu stuttu síðar.

Í Þýskalandi lék Kolbeinn Finnsson allan leikinn fyrir varalið Dortmund í 1-0 sigri á Wehen í þriðju efstu deild. Þá lék Jón Guðni Fjóluson allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Hammarby í 1-0 sigri á Varbergs í efstu deildinni í Svíþjóð.

Mark Mikaels má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner