Dagný Brynjarsdóttir og stöllur hennar í Portland Thorns eru úr leik í úrslitakeppninni í bandarísku deildinni.
Portland heimsótti Chicago í kvöld og mætti þar Chicago Red Stars í undanúrslitaviðureign. Í úrslitakeppninni færðu bara eitt tækifæri, bara einn leik sem sker úr um það hvort þú spilar til úrslita eða ekki.
Portland spilar ekki til úrslita eftir 1-0 tap gegn Chicago í kvöld. Ástralski sóknarmaðurinn Sam Kerr skoraði eina mark leiksins eftir átta mínútur.
Dagný lék allan leikinn hjá Portland, en tímabilinu hjá henni er núna lokið.
Chicago mætir North Carolina Courage í úrslitaleiknum, en þessi tvö lið enduðu í tveimur efstu sætunum í deildarkeppninni.
Our 2019 journey comes to an end. #BAONPDX #OnwardRoseCity pic.twitter.com/rI9ARvsD0e
— Portland Thorns FC (@ThornsFC) October 20, 2019
Athugasemdir