Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. nóvember 2020 12:35
Magnús Már Einarsson
Henderson og Trent ekki með - Thiago, Fabinho og Ox eiga séns
Jordan Henderson verður ekki með á sunnudaginn.
Jordan Henderson verður ekki með á sunnudaginn.
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson og Trent Alexander-Arnold verða ekki með Liverpool gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn vegna meiðsla.

Trent meiddist gegn Manchester City fyrir landsleikjahlé á meðan Henderson meiddist með enska landsliðinu um síðustu helgi.

Joe Gomez og Virgil van Dijk eru báðir á meiðslalistanum næstu mánuðina og þá er Mohamed Salah fjarverandi með kórónuveiruna.

Alex Oxlade-Chamberlain er byrjaður að æfa eftir að hafa verið frá keppni síðan í ágúst. Fabinho og Thiago Alcantara eru einnig nálægt endurkomu eftir að hafa verið frá undanfarnar vikur.

„Fabinho, Thiago, Ox eru allir á góðri leið. Þeir eru að færast nær. Við sjáum hvort þeir verði klárir um helgina," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á fréttamannafundi í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner