fös 20. nóvember 2020 06:00
Victor Pálsson
Martinez: Viss um að 2021 verði frábært ár fyrir Hazard
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, landsliðsþjálfari Belga, viðurkennir að Eden Hazard sé ekki sá ánægðasti í dag eftir að hafa misst af síðustu landsleikjum liðsins á árinu.

Hazard er leikmaður Real Madrid en hann hefur verið mikið meiddur á þessu ári og fékk svo kórónuveiruna nýlega.

Hazard var því ekki hluti af belgíska hópnum sem vann það danska 4-2 í Þjóðadeildinni í gær.

Það hefur lítið gengið upp hjá vængmanninum síðan hann kom til Real frá Chelsea árið 2019.

„Eden vildi svo mikið vera með okkur og spila þrjá síðustu leikina árið 2020," sagði Martinez.

„Þetta ár hefur verið mjög erfitt fyrir hann. Ég er viss um að árið 2021 verði frábært ár fyrir Eden Hazard sem og landsliðið."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner