Fotbolti.net
20.11.24 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alexander Rafn á reynslu hjá FCK - Spilar gegn Manchester liðunum

Alexander Rafn á reynslu hjá FCK - Spilar gegn Manchester liðunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

KR sagði frá því í dag að Alexander Rafn Pálmason væri á reynslu hjá FC Kaupmannahöfn þessa vikuna

Alexander Rafn er fjórtán ára unglingalandsliðsmaður sem varð í sumar yngsti leikmaður í sögu efstu deildar. Hann lék í október þrjá leiki með U15 landsliðinu.

KR segir frá því að Alex muni um helgina fara með U15 liði FCK til Manchester og spila æfingaleiki gegn Man Utd og Man City.
Alexander Rafn á blaði danskra stórliða - Stefnir á ensku úrvalsdeildina
TENGT EFNI

Alexander Rafn á blaði danskra stórliða - Stefnir á ensku úrvalsdeildina

„Eflaust mikið ævintýri fyrir ungan KR-ing og erum við virkilega stolt af þessum efnilega leikmanni," segir í færslu KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.