Fotbolti.net
20.12.23 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Arnar Sigþórs og Pétur Hrafn teknir við ÍH (Staðfest)

Arnar Sigþórs og Pétur Hrafn teknir við ÍH (Staðfest)
Canon

Mynd: ÍH

Arnar Sigþórsson og Pétur Hrafn Friðriksson hafa hafið störf sem þjálfarar ÍH í 3. deild karla. Þeir eru fæddir árin 2001 og 1999 og eru því meðal yngstu þjálfara Íslandsmótsins. Þjálfarateymi Álafoss er það yngsta á landinu.
Arnar og Pétur Hrafn þekkja klúbbinn mjög vel enda eru þeir uppaldir FH-ingar og búa yfir mikilli reynslu með ÍH.

Þeir verða væntanlega spilandi þjálfarar liðsins, enda hafa þeir reynst gríðarlega mikilvægir leikmenn á undanförnum árum.

ÍH rétt bjargaði sér frá falli með frábærum sigrum í tveimur síðustu leikjum sumarsins, þar sem Arnar skoraði eitt markanna í ævintýralegum 5-0 sigri í innbyrðisviðureign gegn KFS.

Í gærkvöldi lék ÍH sinn fyrsta leik undir stjórn nýs þjálfarateymis og skóp 4-3 sigur í æfingaleik gegn KH.

Pétur Hrafn komst á blað en Bergþór Snær Gunnarsson skoraði þrennu eftir að hafa komið inn af bekknum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.