Ásdís Karen til Lilleström (Staðfest)

Ásdís Karen Halldórsdóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ásdís Karen Halldórsdóttir.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Ásdís Karen Halldórsdóttir er gengin í raðir norska félagsins Lilleström. Ásdís, sem er 24 ára gömul í dag, skrifar undir samning við Lilleström sem gildir út 2025.
Ásdís Karen er uppalin hjá Gróttu/KR en skipti yfir til Vals fyrir keppnistímabilið 2018.
Ásdís hefur verið lykilleikmaður í sterku liði Vals undanfarin ár og orðið Íslandsmeistari með félaginu síðustu þrjú ár í röð. Hún skoraði sex mörk í 18 deildarleikjum í sumar.
Ásdís Karen valdi að fara til Lilleström sem endaði í þriðja sæti norsku deildarinnar í ár, fjórum stigum eftir toppliði Vålerenga.
„Ég er mjög ánægð að hafa skrifað undir hjá Lilleström. Þetta er stórt félag með mikla sögu. Ég hlakka til að hitta liðið og byrja," segir þessi öflugi leikmaður.
Hún segist hafa góða reynslu af því að vinna fótboltaleiki með Val og ætlar hún sér að hjálpa Lilleström að komast á toppinn.

VELKOMIN, ÁSDÍS????????????????
— LSK Kvinner FK (@LSKKvinner) December 20, 2023
Ásdís Karen Halldórsdóttir har signert for LSK Kvinner????
Les mer om vår nyervervelse her: https://t.co/MubmnE077u#viosssammen pic.twitter.com/9aMvmxeMnu