Fotbolti.net
20.12.23 - 20:50
Ívan Guðjón Baldursson

Billy Sharp fer til Hull City (Staðfest)

Billy Sharp fer til Hull City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City er búið að staðfesta félagsskipti Billy Sharp til félagsins eftir að hann rann út á samningi hjá Los Angeles Galaxy í bandarísku MLS deildinni.
Sharp er 37 ára gamall og skrifar undir samning við Hull sem gildir út tímabilið. Hann gengur til liðs við Hull þegar félagsskiptaglugginn opnast á nýársdegi.

Framherjinn Sharp er goðsögn hjá Sheffield United en hann hefur einnig leikið fyrir félög á borð við Leeds United, Southampton og Nottingham Forest á ferlinum.

Hann gekk til liðs við LA Galaxy í ágúst og skoraði 6 mörk í 12 leikjum í MLS deildinni, auk þess að gefa eina stoðsendingu.

Sharp gekk til liðs við Sheffield þegar liðið var í League One, C-deild enska boltans, og hefur hjálpað að koma liðinu upp í ensku úrvalsdeildina tvisvar sinnum. Hann kom við sögu í 38 deildarleikjum með Sheffield í Championship deildinni á síðustu leiktíð áður en hann skipti yfir til Bandaríkjanna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.