Fotbolti.net
20.12.23 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Deeney orðinn spilandi þjálfari hjá Forest Green (Staðfest)

Troy Deeney.

Troy Deeney.

Canon

Mynd: Getty Images

Troy Deeney var í dag ráðinn sem spilandi þjálfari hjá Forest Green Rovers. Hann tekur við starfinu af David Horseman sem yfirgaf félagið í dag.
Forest Green er í fallsæti í ensku D-deildinni og hefur aðeins unnið tvo leiki af síðustu 14.

Deeney mun stýra sínum fyrsta leik á föstudaginn á heimavelli gegn Gillingham.

Hinn 35 ára gamli Deeney hefur verið að mennta sig í þjálfarafræðunum en hann gekk til liðs við Forest Green í ágúst. Hann hefur einnig verið hluti af þjálfarateyminu, ásamt því að spila fyrir félagið.

Deeney, sem er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Watford, hefur spilað 16 leiki á þessu tímabili og skorað fjögur mörk. Skórnir eru ekki komnir upp á hillu alveg strax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.