Elvis frá Eyjum til St. Mirren í Skotlandi (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoska úrvalsdeildarfélagið St. Mirren er búið að krækja í Elvis Bwomono á frjálsri sölu eftir að samningur hans við ÍBV rann út.
Elvis er 25 ára varnarmaður frá Úganda, þar sem hann á tvo A-landsleiki að baki, og var byrjunarliðsmaður hjá Southend United í League One og League Two deildunum á Englandi áður en hann gekk í raðir ÍBV í fyrra.
Elvis var snöggur að vinna sér inn byrjunarliðssæti í Vestmannaeyjum en mistókst að bjarga Eyjamönnum frá falli í haust, þrátt fyrir flotta frammistöðu.
Hann hefur verið að æfa með St. Mirren síðustu vikur og gerir hálfs árs samning við félagið sem gildir út leiktíðina, með möguleika á einu auka ári.
St. Mirren er í fjórða sæti skosku deildarinnar sem stendur.