Fotbolti.net
20.12.23 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fram fær markvörð úr bandaríska háskólaboltanum (Staðfest)

Fram fær markvörð úr bandaríska háskólaboltanum (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Hertz
Fram er búið að krækja sér í nýjan markvörð sem mun leika með kvennaliðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Lili Berg er bandarísk og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir frábæra frammistöðu á milli stanganna hjá BGSU háskólanum í Ohio fylki.

Hún er mikill leiðtogi og hefur verið fyrirliði hvert sem hún hefur komið.

Það var rót á markvarðamálum Fram á liðinni leiktíð vegna meiðsla og notaði liðið nokkra mismunandi markverði á deildartímabilinu. Liðið fékk tvö mörk á sig á leik og vonast stjórn knattspyrnudeildar til að það breytist með komu Lili.

Fram fékk 22 stig úr 18 umferðum í Lengjudeildinni í sumar en var aldrei í raunverulegri fallhættu þökk sé slæmu gengi Augnabliks og KR.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.