Fotbolti.net
20.12.23 - 10:37
Elvar Geir Magnússon

Nuno orðinn stjóri Forest (Staðfest)

Nuno orðinn stjóri Forest (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest hefur ráðið Nuno Espirito Santo sem nýjan stjóra, hann tekur við af Steve Cooper sem var reknn í gær.

Nuno er 49 ára og gerði tveggja og hálfs árs samning. Þessi fyrrum stjóri Wolves og Tottenham var rekinn frá Sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad í síðasta mánuði.

Hans fyrsti leikur með stjórnartaumana hjá Forest verður heimaleikur gegn Bournemouth á laugardag.
Forest hefur unnið einn af síðustu þrettán úrvalsdeildarleikjum og náð í átta stig yfir þann kafla. Liðið er fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

Nuno var gríðarlega vinsæll meðal stuðningsmanna Wolves enda kom hann liðinu upp úr Championship-deildinni og alla leið í Evrópukeppni.

Evangelos Marinakis eigandi Forest hefur galopnað veskið í síðustu félagaskiptagluggum og spennandi að sjá hvaða breytingar Nuno mun gera á leikmannahópnum í komandi glugga.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.